Nú hamast ég á því sem ég hélt ég myndi aldrei nenna að leggja lag mitt við; Andlitsbókinni (ég hef ákveðið að sýna Gordon Brown og bresku þjóðinni andúð mína með því að hætta að sletta ensku. Ég vil ekki einu sinni segja fésbók). Davíð Oddssyni og fleira pakki ætla ég að sýna andúð mína með því að mæta á Austurvöll kl. 15 á morgun. Djöfull vildi ég að ég kynni að smíða skilti!
En Andlitsbókin er mjög skemmtileg. Nú á ég vini!
Ætli mér líði ekki eins og Moggabloggurunum...nema ég þekki náttúrlega fólkið sem bætir mér á vinalista sinn (sko! ég hefði getað sagt "addar mér" en gerði það ekki). Þarna eru frænkur mínar og frændur og gamlir skólafélagar og vinir. Ég hélt að þetta væri svo hallærislegt, en það er það ekki!
Þó grunar mig að ég endist ekki í þessu lengi, en það er allt í lagi.
föstudagur, 17. október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Feisbúkk er leim. Farðu að blogga!
Hvaða hvaða. Ég fæ leið á feisbúkkinu eftir viku. Enn er ég eins og krakki á aðfangadagskvöld.
Ég treysti á þitt blogg á meðan!
Skrifa ummæli