fimmtudagur, 16. október 2008

Besta myndin


Hér sit ég kampakát og allsendis grunlaus undir stýri á þessum dýra bílaleigubíl meðan krónan hryyynur.

5 ummæli:

Þórdís Gísladóttir sagði...

Þetta má kalla dæmisgert fyrir ábyrðarlausan lífsstíl þinn.

Hörkuduglegur iðnaðarmaður sagði...

Það segirðu svo sannarlega satt! En ég hef tekið mig á.

Þórdís Gísladóttir sagði...

Sérðu hvað ég er kærulaus með innsláttarvillurnar á þessu leynibloggi? Tvær villur í einni setningu.

Hörkuduglegur iðnaðarmaður sagði...

Á laumublogginu má allt. Þetta er nokkurs konar Kristjanía bloggheima.

Þórdís Gísladóttir sagði...

Ég sá einmitt mynd um daginn um garðrækt í Kristjaníu, ótrúlega flottir garðar við kofana sem sumt fólkið bjó í, mig langaði alveg að flytja þangað (reyndar meira svona til sumardvalar og þetta var áður en Íslendingar voru lúserar í DK. En ég myndi bara þykjast vera finnsk).