sunnudagur, 12. október 2008
Ekki svo grátt silfur
Skil ekki jákvæðni mína á þessum svörtu dögum! Löngum hefur mér þótt Silfur Egils ansi grátt (eða ég hef eldað við það grátt silfur...), en ég fílaði karlinn í ræmur í dag. Það er svo fallegt þegar fólk leyfir sér að reiðast í sjónvarpi. Einkum og sér í lagi þegar það hefur eitthvað að segja um það sem veldur reiðinni. Raunar er ég svo aumingjagóð að ég dauðvorkenndi Jóni Ásgeiri og þótti hálfvegis vænt um hann. J. Á. er áreiðanlega fremur klár og sennilega með þeim skárri af þessu liði, en hann kann ekki nógu vel að koma fyrir sig orði. "Þið skiljið eftir ykkur sviðna jörð!!!" sagði Egill og bergmálaði í reiðinni kommentin á síðunni sinni. Það er gott að sú reiða rödd heyrist, því að tafsið og hringsólið í stjórnmálamönnum og ráðgjöfum og fyrrum víkingum er alveg með ólíkindum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli