þriðjudagur, 14. október 2008

Nafnaskrá og bananabrauð

Ég er að gera nafnaskrá og verð að viðurkenna að það er eitt af skemmtilegri verkum sem ég tek mér fyrir hendur. Smámunasemin og nördisminn blómstra sem aldrei fyrr.

Bananabrauðið kólnar á eldhúsbekknum og inni í herbergi bíður unglingur eftir því að fá sér sneið. Ég hef ekkert að segja, en segi það samt.

Gvuð hvað það er gaman að skrifa á netið þegar maður veit að enginn er að lesa! Svolítið pervers reyndar, en stórskemmtilegt!

Engin ummæli: