laugardagur, 11. október 2008

Spaug

Spaugstofumönnum tókst það sem allir héldu að væri ómögulegt. Að gera algerlega ófyndinn grínþátt eftir brjálæðislegustu fréttaviku síðustu hundrað ára. Hvað er eiginlega að? (fyrir utan allt sem er að). Af hverju eru Baggalútsmenn ekki látnir taka við? Mér fannst frétt þeirra, um að Guð almáttugur ætlaði sér ekkert að hjálpa Íslendingum og ekki einusinni að aumkva sig yfir okkur með því að hafa gott veður á meðan hörmungarnar gengju yfir, alveg frábær. Guð tapaði víst heilmiklu á FL-Group og er þessvegna alveg rosalega fúll. Eins og gefur að skilja.

Engin ummæli: