Mér finnst nafna mín ótrúlega skemmtileg og flott kona. Undireins sé ég eftir því að hafa hreytt útúr mér þegar ég tók eitt sinn viðtal við Ashkenazy; "Sérðu ekkert eftir því að hafa látið þína mjög svo hæfileikaríku konu hætta að spila og fara í staðinn að þjóna þér í þínu spileríi?"
Reyndar sagði ég það í örvæntingu, til þess að fá smá viðbrögð frá þessum karli sem hefur farið í þúsund viðtöl og var eins og zombí þegar ég var að reyna að tala við hann.
Enda gekk planið upp. Karlinn reiddist og fór í heiftarlega vörn...og þá fékk ég eitthvað að skrifa um.
Eins og venjulega, þá hef ég rangt fyrir mér um fólk (sbr. þegar ég tók viðtal við Guðmund í Byrginu fyrir fáeinum árum og þótti hann algert æði). Nafna mín virðist ekki kúguð eiginkona sem var rænd möguleikum sínum á því að verða frægur konsertpíanisti, heldur bara alger töffari. Enda sagði hún þegar talið barst að hæfileikum hennar og manns hennar í kvöld: "Hann hefur mjög gott eyra fyrir músík, en mín eyru eru aðeins betri."
sunnudagur, 12. október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli